Fotbolti.net
26.08.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Correa til Marseille með kaupskyldu (Staðfest)

Correa til Marseille með kaupskyldu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Olympique de Marseille er búið að staðfesta félagsskipti sóknarmannsins Joaquín Correa frá Inter.

Correa kemur á lánssamningi sem gildir út tímabilið og borgar Marseille 2 milljónir evra fyrir lánið.

Það fylgir kaupskylda með lánssamningnum sem hljóðar upp á 10 milljónir evra til viðbótar - en virkjast einungis ef Marseille kemst í Meistaradeildina fyrir næstu leiktíð.

Correa er 29 ára gamall með 76 leiki að baki á tveimur árum hjá Inter, en hann lék fyrir Sampdoria, Sevilla og Lazio áður en hann elti Simone Inzaghi þjálfara til Inter.

Inter er þá að fá Alexis Sanchez aftur til baka frá Marseille og kemur hann á frjálsri sölu.

Correa til Marseille með kaupskyldu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.