Fotbolti.net
27.08.23 - 10:53
Ívan Guðjón Baldursson

Isaksen til Lazio (Staðfest) - Guendouzi næstur inn

Isaksen til Lazio (Staðfest) - Guendouzi næstur inn
Canon

Mynd: Getty Images

Lazio er búið að staðfesta kaup á kantmanninum efnilega Gustav Isaksen sem kemur úr röðum Midtjylland fyrir um 12 milljónir evra.

Isaksen er 22 ára gamall og kom að 31 marki í 45 leikjum með Mið-Jótlendingum á síðustu leiktíð.

Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Lazio fær í sumar eftir að hafa krækt í menn á borð við Daichi Kamada, Nicoló Rovella og Taty Castellanos.

Næstur inn eftir Isaksen verður franski miðjumaðurinn Matteo Guendouzi. 

Lazio er búið að ná samkomulagi við Marseille um kaupverð sem nemur um 18 milljónum evra.

Guendouzi er 24 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Marseille síðan hann kom til félagsins úr röðum Arsenal.

Guendouzi, sem spilaði tæpa 100 leiki á tveimur árum hjá Arsenal, er með sjö A-landsleiki að baki fyrir sterkt lið Frakka.

Isaksen til Lazio (Staðfest) - Guendouzi næstur inn
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.