Fotbolti.net
27.08.23 - 20:09
Brynjar Ingi Erluson

Mohammed Kudus til West Ham (Staðfest)

Mohammed Kudus til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: West Ham

Ganamaðurinn Mohammed Kudus skrifaði í dag undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið West Ham en hann kemur frá Ajax fyrir tæpar 39 milljónir punda.
Kudus ferðaðist til Lundúna í dag til að ganga frá skiptunum en West Ham og Ajax áttu í viðræðum í nokkra daga áður en samkomulag náðist.

West Ham greiðir 39 milljónir punda og skrifaði Kudus undir fimm ára samning.

Kudus er 23 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem kom að 39 mörkum í 87 leikjum með Ajax.

Þetta er gríðarlegur fengur fyrir West Ham sem hefur unnið tvo og gert eitt jafntefli í fyrstu þremur leikjum tímabilsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.