Fotbolti.net
26.08.23 - 09:40
Ívan Guðjón Baldursson

Fenerbahce fær Livakovic og Ünder (Staðfest)

Fenerbahce fær Livakovic og Ünder (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska stórveldið Fenerbahce hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og var að staðfesta komu króatíska landsliðsmarkvarðarins Dominik Livakovic.

Livakovic er 28 ára gamall og gengur til liðs við Fenerbahce úr röðum Dinamo Zagreb fyrir um 7,5 milljónir evra.

Livakovic hefur verið hjá Zagreb síðustu átta ár en hann á 45 landsleiki að baki fyrir Króatíu. Hann endaði í öðru og þriðja sæti á síðustu tveimur heimsmeistaramótum með landsliðinu og hefur verið valinn í lið ársins í króatísku deildinni síðustu sex ár í röð.

Það voru fleiri félög sem reyndu að krækja í Livakovic en hann endar hjá Fenerbahce, sem er einnig búið að krækja í fleiri leikmenn í sumar.

Cengiz Ünder er sá dýrasti en Fenerbahce borgar um 15 milljónir evra til að kaupa hann af Marseille í Frakklandi. Ünder er 26 ára kantmaður og gerði flotta hluti í franska boltanum, en þar áður var hann hjá AS Roma á Ítalíu en tókst ekki að springa almennilega út þrátt fyrir flotta kafla.

Þá borgaði Fenerbahce um 10 milljónir fyrir pólska sóknartengiliðinn Sebastian Szymanski frá Dynamo Moskvu, sem gerði frábæra hluti á láni hjá Feyenoord á síðustu leiktíð.

Rúmar 8 milljónir fóru í brasilíska miðvörðinn Rodrigo Becao sem hefur verið mikilvægur hlekkur í varnarlínu Udinese á undanförnum árum en lægri upphæðir fóru í Mert Müldür frá Sassuolo, Gustavo Henrique frá Flamengo og smærri spámenn.

Þá eru Dusan Tadic, Ryan Kent og Edin Dzeko allir komnir á frjálsri sölu. Það verður afar spennandi að fylgjast með Fenerbahce í vetur, en liðið gjörsamlega rúllaði yfir Alfons Sampsted og félaga í FC Twente í forkeppni Sambandsdeildarinnar í gær.

Under á 16 mörk í 49 landsleikjum með Tyrklandi.

Under á 16 mörk í 49 landsleikjum með Tyrklandi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.