Fotbolti.net
26.08.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Lukebakio og Nyland til Sevilla (Staðfest)

Lukebakio á átta landsleiki að baki fyrir Belgíu.

Lukebakio á átta landsleiki að baki fyrir Belgíu.

Canon

Mynd: EPA

Sevilla var að bæta tveimur leikmönnum við hópinn sinn fyrir átök haustsins.

Dodi Lukebakio kemur úr röðum Hertha Berlin fyrir 11 milljónir evra eftir að hafa fallið með félaginu úr efstu deild þýska boltans.

Lukebakio er 25 ára og leikur sem hægri kantmaður að upplagi en getur einnig leikið vinstra megin eða í fremstu víglínu.

Hann var besti leikmaður Hertha er liðið féll úr þýsku deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann kom að 17 mörkum í 33 leikjum.

Hann er búinn að gera fimm ára samning við Sevilla og mun berjast við Erik Lamela, Suso, Papu Gomez og Lucas Ocampos um sæti í byrjunarliðinu.

Þá er norski markvörðurinn Örjan Nyland búinn að gera tveggja ára samning við félagið eftir eitt ár sem varamarkvörður hjá RB Leipzig.

Nyland stoppaði hjá Aston Villa, Norwich, Bournemouth og Reading á dvöl sinni á Englandi. Hann er fenginn til að fylla í skarðið fyrir Bono og mun berjast við Marko Dmitrovi?, fyrrum landsliðsmarkvörð Serbíu, um sæti í byrjunarliðinu.

Þá var Sevilla að senda danska miðjumanninn Thomas Delaney á lán til Anderlecht í Belgíu. 

Sænski bakvörðurinn Ludwig Augustinsson er einnig farinn til Anderlecht á láni frá Sevilla.

Delaney á 47 leiki að baki á tveimur árum hjá Sevilla.

Delaney á 47 leiki að baki á tveimur árum hjá Sevilla.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.