Fotbolti.net
25.08.23 - 12:41
Elvar Geir Magnússon

Forest fær Andrey Santos á láni frá Chelsea (Staðfest)

Andrey Santos.

Andrey Santos.

Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest hefur fengið brasilíska miðjumanninn Andrey Santos lánaðan frá Chelsea út tímabilið.

Þessi nítján ára leikmaður á einn landsleik fyrir Brasilíu en hann kom til Chelsea í janúar frá Vasco da Gama en var lánaður strax til baka.

Hann skoraði átta mörk í 33 leikjum þegar Vasco vann sér inn sæti í efstu deild Brasilíu að nýju á síðasta ári.
„Ég er afskaplega ánægður og spenntur fyrir því að vera hér. Ég veit að Forest er stórt félag með góða leikmenn og spilar góðan fótbolta. Það er mikilvægt fyrir mig. Það hefur alltaf verið draumur minn að spila í ensku úrvalsdeildinni og ég get ekki beðið eftir því að spila," segir Santos.

Santos var fyrirliði U20 liðs Brasilíu sem varð Suður-Ameríkumeistari fyrr á þessu ári. Hann varð markahæstur á mótinu ásamt öðrum leikmanni, með sex mörk.

Hann hefur enn ekki spilað aðalliðsleik fyrir Chelsea en spilaði á undirbúningstímabilinu.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Forest fær í sumar; eftir komu Anthony Elanga, Matt Turner, Ola Aina og Gonzalo Montiel.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.