Archer sá áttundi til að ganga í raðir Sheffield (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Sheffield United er búið að kaupa Cameron Archer frá Aston Villa fyrir um 18 milljónir punda og gera fjögurra ára samning við leikmanninn.
Archer er 21 árs gamall framherji sem var partur af U21 landsliði Englands sem vann EM í sumar.
Hann er mikill markaskorari og á 6 mörk í 11 landsleikjum, en á síðustu leiktíð lék hann á láni hjá Middlesbrough og kom að 17 mörkum í 20 deildarleikjum.
Archer er áttundi leikmaðurinn sem Sheffield fær í sumar og jafnframt sá dýrasti. Félagið er meðal annars búið að krækja í Vinícius Souza, Auston Trusty, Tom Davies og Gustavo Hamer í glugganum.
„Þetta var frábært tækifæri fyrir okkur að krækja í ungan og spennandi framherja sem er spenntur fyrir að spila fyrir okkur. Cameron kemur inn í hópinn með hraða, lipurð og gott markanef - sem okkur sárvantar," segir Paul Heckingbottom stjóri Sheffield.
Archer is a Blade. ??
— Sheffield United (@SheffieldUnited) August 27, 2023
The striker has signed a four-year deal after the Blades negotiated a considerable, undisclosed transfer fee with Aston Villa.#SUFC ????


Mynd: EPA





