
Al-Ahli kaupir Gabri Veiga (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Útrásin til Sádí-Arabíu er enn í fullum gangi og hefur spænska ungstirnið Gabri Veiga skrifað undir samning við Al-Ahli.
Veiga kemur úr röðum Celta Vigo og borgar Al-Ahli um 40 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Veiga virtist vera á leið til Ítalíumeistara Napoli eftir að þeir fengu tilboð samþykkt en leikmaðurinn virðist hafa skipt um skoðun þegar hann fékk betra samningstilboð frá Sádí-Arabíu.
Hjá Al-Ahli mun Veiga spila með leikmönnum á borð við Riyad Mahrez, Roberto Firmino og Franck Kessié, undir stjórn Matthias Jaissle.
The jewel of Spain will chant our anthem ????????#VeigaToAlahli
— Al-Ahli Saudi Club (@ALAHLI_FCEN) August 26, 2023
pic.twitter.com/NLvSrhWVNn





