Petrovic genginn til liðs við Chelsea (Staðfest)


Mynd: Chelsea


Mynd: Chelsea
Markvörðurinn Djordje Petrovic er genginn til liðs við Chelsea og gerir sjö ára samning við félagið. Hann gengur til liðsins frá New England Revolution í MLS deildinni í Bandaríkjunum.
Chelsea borgar um 14 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Petrovic er 23 ára gamall en hann er annar markvörðurinn sem gengur til liðs við félagið í sumar eftir Robert Sanchez sem kom frá Brighton.
Hann er fenginn til að berjast við Sanchez um sæti í liðinu en Marcus Bettinelli er fyrir hjá félaginu og hugsaður sem þriðji markvörður.
Petrovic er Serbi en hann á tvo landsleiki að baki fyrir þjóð sína.
Welcome to Chelsea, Djordje Petrovic! ????
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 26, 2023





