Fotbolti.net
26.08.23 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Holgate og Fraser til Southampton (Staðfest) - Tella til Leverkusen

Holgate og Fraser til Southampton (Staðfest) - Tella til Leverkusen
Canon

Mynd: Getty Images

Southampton nýtti gærkvöldið til að kynna tvo nýja menn til leiks, þá Mason Holgate og Ryan Fraser sem koma úr röðum Everton og Newcastle.

Holgate er 26 ára gamall varnarmaður sem á 149 leiki að baki fyrir Everton, þar á meðal 126 í ensku úrvalsdeildinni, en missti sæti sitt í liðinu á síðustu leiktíð.

Fraser er knár kantmaður sem er 29 ára gamall og býr yfir mikilli reynslu úr efstu deildum enska boltans eftir að hafa spilað fyrir Bournemouth og Newcastle.

Fraser, sem á 26 landsleiki að baki fyrir Skotland, kom aðeins að níu mörkum í 59 leikjum á dvöl sinni hjá Newcastle og glímdi við tíð meiðsli. Hann kom að 57 mörkum í 208 leikjum með Bournemouth.

Holgate á að fylla í skarðið sem Armel Bella-Kotchap skilur eftir, en hann virðist vera á leið til FC Bayern að fylla í skarðið sem Benjamin Pavard skilur eftir með félagsskiptum sínum til Inter.

Fraser á að koma inn fyrir Nathan Tella sem er á leið til Bayer Leverkusen fyrir um 25 milljónir evra.

Holgate og Fraser til Southampton (Staðfest) - Tella til Leverkusen
Canon

Mynd: EPA

Holgate og Fraser til Southampton (Staðfest) - Tella til Leverkusen
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.