Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24448 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR13.07.2023, 22:32

PSG kynnir Cher Ndour (Staðfest)

Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru búnir að kynna nýjasta leikmann félagsins, hinn 18 ára gamla Cher Ndour.

FRÉTTIR13.07.2023, 19:04

Bournemouth kaupir Faivre (Staðfest)

AFC Bournemouth er búið að staðfesta kaup á franska miðjumanninum Romain Faivre sem kostar um 15 milljónir evra og kemur úr röðum Lyon.

FRÉTTIR13.07.2023, 17:18

Pulisic til Milan (Staðfest)

AC Milan hefur gengið frá kaupum á bandaríska leikmanninum Christian Pulisic sem kemur frá enska félaginu Chelsea. Kaupin hafa legið fyrir í talsverðan tíma en nú er búið að skrifa undir alla pappíra og allt við skiptin frágengið. Pulisic kom til Chelsea árið 2019 frá Dortmund. Hann skoraði 26 mörk í 145 leikjum fyrir Chelsea og er þrennan gegn Burnley minnistæð sem og markið og stoðsendingin í undanúrslitaeinvíginu gegn Real Madrid í Meistaradeildinni vorið 2021.

FRÉTTIR13.07.2023, 16:00

Gyökeres til Sporting Lissabon fyrir metupphæð (Staðfest)

Sænski sóknarmaðurinn Viktor Gyökeres er orðinn leikmaður Sporting Lissabon í Portúgal. Coventry City í Championship-deildinni selur hann á metupphæð hjá félaginu. Coventry tapaði í úrslitaleik umspilsins á síðasta tímabili og mistókst að komast upp. Gyökeres er 25 ára en Coventry hefur þegar fengið leikmann til að fylla hans skarð, Ellis Simms sem kom frá Everton. Gyökeres var í fimm tímabil í breskum fótbolta síðan Brighton keypti hann frá Brommapojkarna í Svíþjóð í desember 2017. Á síðasta tímabili skoraði hann 21 mark og átti 12 stoðsendingar og varð þar með einn verðmætasti leikmaður Championship-deildarinnar. Talað er um að Coventry hafi selt hann á 18,5 milljónir punda. Áður var Robbie Keane stærsta sala félagsins, hann fór til Inter fyrir 13 milljónir punda í ágúst 2000. Þá er hann dýrasti leikmaður í sögu Sporting Lissabon sem borgaði 13,7 milljónir punda fyrir sóknarmanninn Paulinho sem kom frá Sporting Braga í janúar 2021.

FRÉTTIR13.07.2023, 12:00

Sheff Utd kaupir Slimane frá Bröndby (Staðfest)

Sheffield United, sem vann sér í vetur sæti í ensku úrvalsdeildinni, hefur gengið frá kaupum á Anis Ben Slimane frá danska félaginu Bröndby. Slimane, sem er 22 ára miðjumaður, skrifar undir þriggja ára samning við enska félagið.

FRÉTTIR13.07.2023, 10:45

Ashley Young til Everton (Staðfest)

Ashley Young er genginn í raðir Everton á frjálsri sölu frá Ashley Young þar sem samningur hans rann út í lok síðasta mánaðar. Hann hafnaði tilboðum frá öðrum úrvalsdeildarfélögum, félögum úr Championship og annars staðar í Evrópu til að ganga í raðir Everton.

FRÉTTIR13.07.2023, 10:15

Amanda í Val (Staðfest)

Amanda Andradóttir hefur skrifað undir hjá Val og kemur til félagsins frá Kristianstad í Svíþjóð.

FRÉTTIR12.07.2023, 22:33

Inter fær Bisseck frá AGF (Staðfest)

Inter er búið að staðfesta komu Yann Aurel Bisseck til félagsins frá AGF í Danmörku, sem Mikael Neville Anderson leikur fyrir.

FRÉTTIR12.07.2023, 18:32

Southampton fær Charles frá Man City (Staðfest)

Southampton heldur áfram að kaupa unga leikmenn úr röðum Manchester City og er Shea Charles sá fyrsti sem fer á milli félaganna í sumar, eftir að hafa krækt í fjóra slíka á síðustu leiktíð.

FRÉTTIR12.07.2023, 14:18

Pau Torres til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur tilkynnt um kaup á spænska varnarmanninum Pau Torres frá Villarreal. Torres er 26 ára miðvörður sem spilað hefur 23 landsleiki fyrir Spán.

FRÉTTIR12.07.2023, 11:50

Vitor Roque til Barcelona (Staðfest)

Barcelona hefur staðfest kaup á brasilíska ungstirninu Vitor Roque. Þessi átján ára sóknarmaður gerir sjö ára samning við Börsunga sem borga Athletico Paranaense 30 milljónir evra en sú upphæð gæti tvöfaldast eftir árangurstengdar greiðslur.

FRÉTTIR11.07.2023, 13:00

Fofana frá Chelsea til Union Berlin (Staðfest)

Union Berlin í Þýskalandi hefur fengið David Datro Fofana á láni frá Chelsea út komandi tímabil. Chelsea keypti Fofana af norska félaginu Molde í janúar og kom hann fjórum sinnum við sögu með Chelsea á síðustu mánuðum.

FRÉTTIR11.07.2023, 11:55

Solomon til Tottenham (Staðfest)

Tottenham hefur fengið til sín ísraelska vængmanninn Manor Solomon frá Shaktar Donetsk. Hann hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið. Þessi 23 ára leikmaður var hjá Fulham á lánssamningi á síðasta tímabili en þar skoraði hann fimm mörk í 24 leikjum.

FRÉTTIR11.07.2023, 06:00

PAOK fær Baba Rahman frítt frá Chelsea (Staðfest)

Ganverski bakvörðurinn Baba Rahman er búinn að skrifa undir tveggja ára samning, með möguleika á eins árs framlengingu, við PAOK í gríska boltanum. Hann gengur til liðs við félagið aðeins nokkrum dögum eftir að Sverrir Ingi Ingason var seldur til Midtjylland í Danmörku.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.