Manning fylgir Russell Martin til Southampton (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Southampton er búið að krækja í Ryan Manning á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Swansea rann út. Hann fylgir því knattspyrnustjóranum Russell Martin til nýs félags.
Manning er fyrsti leikmaðurinn sem Southampton bætir við sig í sumar. Hann er 27 ára vinstri bakvörður sem hefur verið í lykilhlutverki hjá Swansea síðustu tvö ár.
Manning gerir fjögurra ára samning við Southampton en hann hefur vakið verðskuldaða athygli á sér undanfarin misseri og voru nokkur félög úr ensku úrvalsdeildinni áhugasöm, en hann ákvað að fylgja stjóranum sínum eftir tveggja ára samstarf í Wales.
„Ég er spenntur fyrir nýrri áskorun hjá risastóru félagi sem er vant því að vera í úrvalsdeildinni. Hérna er eina markmiðið að fara upp um deild og ég er spenntur fyrir að spila undir stjóranum, ég þekki hans leikstíl mjög vel. Mér líður eins og þetta sé fullkominn áfangastaður fyrir mig," sagði Manning við undirskriftina.
Martin var hæstánægður með sinn mann og talaði um hversu heppinn hann væri að hafa krækt í Manning á undan úrvalsdeildarfélögunum.
Manning á sex leiki að baki fyrir írska landsliðið en James McClean hefur verið að halda honum úr byrjunarliðinu að undanförnu.




