Hofmann til Leverkusen á gjafaprís (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Borussia Mönchengladbach er búið að festa kaup á franska kantmanninum Franck Honorat, sem kemur úr röðum Brest og kostar 10 milljónir evra.
Honorat er 26 ára gamall og skoraði sex mörk og gaf sex stoðsendingar í 35 leikjum á síðustu leiktíð. Hann er uppalinn hjá Nice og spilaði ellefu leiki fyrir yngri landslið Frakka en tók aldrei stökkið upp í A-landsliðið.
Hann er fenginn til að fylla í skarðið sem þýski landsliðsmaðurinn Jonas Hofmann skilur eftir sig, eftir að Bayer Leverkusen keypti hann fyrir 10 milljónir evra.
Leverkusen nýtti sér sérstakt söluákvæði í samningi Hofmann til að kaupa hann frá Gladbach, sem vildi ekki selja þennan lykilleikmann.
Hofmann er þrítugur kantmaður sem hafði verið hjá Gladbach í sjö og hálft ár.
Hann kom í heildina að 99 mörkum í 214 leikjum með Gladbach, en á síðustu leiktíð skoraði hann 14 mörk og gaf 12 stosðendingar í 33 leikjum. Magnað framlag.


Mynd: EPA




