Fofana frá Chelsea til Union Berlin (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Union Berlin í Þýskalandi hefur fengið David Datro Fofana á láni frá Chelsea út komandi tímabil.
Chelsea keypti Fofana af norska félaginu Molde í janúar og kom hann fjórum sinnum við sögu með Chelsea á síðustu mánuðum.

Fofana er tvítugur framherji frá Fílabeinsströndinni og mun halda áfram að þróa sinn leik í Þýskalandi.
Union verður í Meistaradeildinni á komandi tímabili og er það í fyrsta skipti í sögu félagsins sem félagið tekur þátt í þeirri keppni.
Fofana náði ekki að skora í norsku deildinni tímabilið 2021 en blómstraði í fyrra og skoraði þá fimmtán mörk í 24 leikjum þegar Molde varð meistari.