Fotbolti.net
13.07.23 - 10:15
Elvar Geir Magnússon

Amanda í Val (Staðfest)

Amanda spilar í fyrsta sinn í efstu deild á Íslandi.

Amanda spilar í fyrsta sinn í efstu deild á Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Amanda Andradóttir hefur skrifað undir hjá Val og kemur til félagsins frá Kristianstad í Svíþjóð.
Amanda er nítján ára og er ein efnilegasta fótboltakona landsins, fædd árið 2003 og lék með Val í yngri flokkum.

Hún hefur spilað með Nordjælland í Danmörku, Vålerenga í Noregi og Kristianstad í Svíþjóð. Hún hefur leikið 12 leiki með yngri landsliðum Íslands og skorað 10 mörk og 13 A landsliðsleiki og skorað 2 mörk. Þà er hún í A landsliðshópnum sem mætir Finnlandi og Austurríki á næstu dögum.

„Við erum gríðarlega spennt að fá Amöndu heim og hlökkum til að sjá hana í fyrsta sinn i efstu deild á Íslandi. Velkomin heim Amanda!" segir í tilkynningu Vals.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.