Fotbolti.net
11.07.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

PAOK fær Baba Rahman frítt frá Chelsea (Staðfest)

PAOK fær Baba Rahman frítt frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ganverski bakvörðurinn Baba Rahman er búinn að skrifa undir tveggja ára samning, með möguleika á eins árs framlengingu, við PAOK í gríska boltanum. Hann gengur til liðs við félagið aðeins nokkrum dögum eftir að Sverrir Ingi Ingason var seldur til Midtjylland í Danmörku.

Rahman kemur á frjálsri sölu eftir að hafa samið við Chelsea um starfslok, en hann spilaði 23 leiki fyrir Chelsea tímabilið 2015-16. Hann hefur ekki átt fast sæti í neinu byrjunarliði síðan hann var á mála hjá Augsburg 2014-15.

Hann varði síðustu tveimur leiktíðum á láni hjá Reading í Championship deildinni en reynir nú fyrir sér í gríska boltanum.

Rahman er 29 ára gamall og á 51 leik að baki fyrir landslið Gana. Hann er annar varnarmaðurinn sem PAOK krækir í með skömmu millibili eftir að félagið fékk William Troost-Ekong á gjafaprís frá Watford.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.