Fotbolti.net
11.07.23 - 11:55
Elvar Geir Magnússon

Solomon til Tottenham (Staðfest)

Manor Solomon skrifar undir.

Manor Solomon skrifar undir.

Canon

Mynd: Tottenham

Tottenham hefur fengið til sín ísraelska vængmanninn Manor Solomon frá Shaktar Donetsk. Hann hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið.

Þessi 23 ára leikmaður var hjá Fulham á lánssamningi á síðasta tímabili en þar skoraði hann fimm mörk í 24 leikjum.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Tottenham fær til sín í sumar, áður hefur félagið fengið vængmanninn Dejan Kulusevski, markvörðinn Guglielmo Vicario og miðjumanninn James Maddison.

Solomon kemur til Tottenham á frjálsri sölu. Liðið hafnaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og missti af sæti í Evrópukeppni.

Solomon hefur leikið 35 landsleiki fyrir Ísrael og hefur skorað sjö mörk síðan hann lék sinn fyrsta landsleik 2018.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.