Fotbolti.net
11.07.23 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Rennes fær Le Fée og Blas fyrir 35 milljónir (Staðfest)

Rennes fær Le Fée og Blas fyrir 35 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Franska félagið Rennes er búið að styrkja sig umtalsvert fyrir næstu leiktíð í franska boltanum.

Rennes endaði í fjórða sæti frönsku deildarinnar og keppir því í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.

Félagið er búið að styrkja sig með þremur leikmönnum í sumar, þar sem það greiðir um 35 milljónir evra fyrir tvo þeirra.

Enzo Le Fée kostar um 20 milljónir en hann kemur úr röðum Lorient og vann Rennes kapphlaup við ensk úrvalsdeildarfélög og Borussia Dortmund til að kaupa hann. Liverpool var einnig orðað við Le Fée í vor.

Le Fée, 23 ára, er sóknarsinnaður miðjumaður með 20 leiki að baki fyrir yngri landslið Frakklands og gerir hann fimm ára samning við Rennes.

Rennes er þá einnig búið að krækja í lykilmann frá nágrönnum sínum í Nantes. Sá heitir Ludovic Blas og spilar nákvæmlega sömu stöðu og Le Fée. Þeir eru mjög svipaðir leikmenn en Blas er 25 ára gamall og með 26 leiki að baki fyrir yngri landslið Frakka.

Blas hefur ekki tekist að taka stökkið upp í A-landsliðið en hann átti flott tímabil með Nantes í fyrra þar sem hann kom að 20 mörkum í 50 leikjum.

Rennes borgar 15 milljónir evra fyrir Blas sem gerir fjögurra ára samning. Blas bað stuðningsmenn Nantes velvirðingar á þessari ákvörðun sinni að ganga til liðs við nágrannaliðið með færslu á samfélagsmiðlum.

Að lokum er félagið búið að krækja í markvörðinn Gauthier Gallon frá Troyes. Kaupverðið er óuppgefið en hann fær treyju númer 1 og mun berjast við Steve Mandanda og Alfred Gomis um byrjunarliðssæti.

Gallon er þrítugur og lék fyrir Nimes og Orleans áður en hann gekk til liðs við Troyes, sem féll úr efstu deild í vor.

Rennes fær Le Fée og Blas fyrir 35 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Rennes fær Le Fée og Blas fyrir 35 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.