Southampton fær Charles frá Man City (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Southampton heldur áfram að kaupa unga leikmenn úr röðum Manchester City og er Shea Charles sá fyrsti sem fer á milli félaganna í sumar, eftir að hafa krækt í fjóra slíka á síðustu leiktíð.
Charles er 19 ára varnartengiliður sem getur einnig spilað sem miðvörður eða hægri bakvörður. Hann á að fylla í skarðið sem Romeo Lavia mun skilja eftir sig þegar hann verður seldur.
Lavia var einmitt keyptur frá Man City í fyrra og þá borgaði Southampton um 14 milljónir punda, en núna er hann metinn á um 50 milljónir.
Southampton borgar um 14 milljónir fyrir Charles sem gerir fjögurra ára samning við félagið. Í kaupsamningnum eru ákvæði um endurkaupsrétt og prósentuhlutfall af næstu sölu, alveg eins og var í kaupsamningi Romeo Lavia í fyrra.
Charles er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Southampton eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni, en félagið krækti í vinstri bakvörðinn Ryan Manning á frjálsri sölu í gær.
Adding to the collection ????
— Southampton FC (@SouthamptonFC) July 12, 2023
Shea Charles is a SAINT! ???? pic.twitter.com/a4j3ypd8kW




