Fotbolti.net
12.07.23 - 19:36
Ívan Guðjón Baldursson

Milinkovic-Savic er nýr leikmaður Al-Hilal (Staðfest)

Milinkovic-Savic er nýr leikmaður Al-Hilal (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Serbneski miðjumaðurinn Sergej Milinkovic-Savic er búnin að skipta um félag, hann er kominn til Al-Hilal í Sádí-Arabíu eftir átta ár hjá Lazio í ítalska boltanum.

Al-Hilal er talið borga um 40 milljónir evra fyrir miðjumanninn öfluga sem hefur verið eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu í gegnum tíðina.

Milinkovic-Savic er 28 ára gamall og kom að 17 mörkum í 36 leikjum á síðustu leiktíð í Serie A deildinni, enda hefur hann verið meðal allra bestu miðjumanna deildarinnar á tíma sínum þar.

Þessi félagsskipti koma á óvart vegna þess að leikmaðurinn á eftir að vinna alla titla nema ítalska bikarinn. Hann gerir þriggja ára samning við Al-Hilal þar sem hann fær treyju númer 10 og mun spila undir stjórn Jorge Jesus.

Al-Hilal er einnig búið að krækja í Kalidou Koulibaly og Ruben Neves í sumar en liðið var þegar með Andre Carrillo, Moussa Marega og Matheus Pereira innanborðs.

Þetta eru frábær kaup fyrir Al-Hilal en félög á borð við Juventus, PSG og Real Madrid hafa verið orðuð við Milinkovic-Savic í fortíðinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.