Pau Torres til Aston Villa (Staðfest)

Pau Torres og Unai Emery.

Mynd: Aston Villa

Pau Torres og Unai Emery.

Mynd: Aston Villa
Aston Villa hefur tilkynnt um kaup á spænska varnarmanninum Pau Torres frá Villarreal. Torres er 26 ára miðvörður sem spilað hefur 23 landsleiki fyrir Spán.
Torres spilaði undir stjórn Unai Emery, stjóra Villa, hjá Villarreal milli 2020 og 2023. Saman unnu þeir Evrópudeildina 2021 en liðið lagði Manchester United í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum.
Torres kemur upp úr unglingastarfi spænska liðsins og var lykilmaður þegar það hafnaði í fimmta sæti í La Liga á síðasta tímabili.
Torres lék 173 leiki fyrir Villarreal og skoraði tólf mörk. Hann ætti að reynast Villa gríðarlegur liðsstyrkur.

It's officially official. ? pic.twitter.com/i17AfpqgbA
— Aston Villa (@AVFCOfficial) July 12, 2023