Fotbolti.net
12.07.23 - 22:33
Ívan Guðjón Baldursson

Inter fær Bisseck frá AGF (Staðfest)

Inter fær Bisseck frá AGF (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Inter er búið að staðfesta komu Yann Aurel Bisseck til félagsins frá AGF í Danmörku, sem Mikael Neville Anderson leikur fyrir.

Inter borgar upp riftunarverðið fyrir Bisseck sem nemur 7 milljónum evra, en þessi 22 ára miðvörður er U21 landsliðsmaður Þýskalands og keppti með liðinu á EM í sumar.

Hann gerir fimm ára samning við Inter eftir að hafa verið meðal bestu varnarmanna danska boltans siðustu tvö ár. 

Bisseck bætist við öflugan miðvarðahóp hjá Inter, sem samanstendur af Alessandro Bastoni, Stefan de Vrij og Francesco Acerbi eins og staðan er í dag.

Bisseck er uppalinn hjá Köln en lék meðal annars fyrir Holsten Kiel og Roda JC á láni áður en hann skipti yfir til Árósa.

Inter fær Bisseck frá AGF (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.