Vitor Roque til Barcelona (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Barcelona hefur staðfest kaup á brasilíska ungstirninu Vitor Roque. Þessi átján ára sóknarmaður gerir sjö ára samning við Börsunga sem borga Athletico Paranaense 30 milljónir evra en sú upphæð gæti tvöfaldast eftir árangurstengdar greiðslur.
Roque hefur þegar leikið sinn fyrsta landsleik fyrir Brasilíu en hann skoraði 22 mörk og átti 9 stoðsendingar fyrir Athletico.
Sagt er að hann hafi hafnað bitastæðari tilboðum til að verða leikmaður Barcelona.
Vonir eru bundnar við það að Roque verði á næstu árum fremsti maður Barcelona og muni fyrst koma til að læra af Robert Lewandowski áður en hann tekur við hlutverki hans.

???? ???? ????
— FC Barcelona (@FCBarcelona) July 12, 2023
???? ???? ???? ???? ???? ???? ???? ???? ????
???? ???? ???? ???? ???? ???? ???? pic.twitter.com/ttHvYSOLrU