Fotbolti.net
16.11.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Leikmenn Man Utd geta búist við erfiðum hlaupaæfingum

Leikmenn Man Utd geta búist við erfiðum hlaupaæfingum
Canon

Mynd: EPA

Belginn reynslumikli Toby Alderweireld starfar í dag sem fótboltasérfræðingur í heimalandinu og hefur einnig starfað fyrir BBC, sem setti sig í samband við hann á dögunum til að spyrja út í Mauricio Pochettino, sem er að taka við stjórn á Manchester United eftir landsleikjahléð.
Man Utd sækir í sig veðrið í janúarglugganum
TENGT EFNI

Man Utd sækir í sig veðrið í janúarglugganum

Alderweireld er 37 ára gamall og lék í fjögur ár undir stjórn Pochettino hjá Tottenham. Saman fóru þeir í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2019 og enduðu í öðru sæti úrvalsdeildarinnar, en unnu engan titil.

„Mauricio er mjög viðkunnanlegur en maður verður að fylgja skipulaginu hans. Ef maður fylgir ekki því sem hann segir, þá er maður settur til hliðar og erfitt að komast aftur til baka úr því. Liðsheildin er alltaf í fyrirrúmi, hann vill ekki hafa leikmenn innanborðs sem telja sjálfa sig vera mikilvægari heldur en liðsheildin," segir Alderweireld.

„Leikmenn eiga sitt eigið líf en liðið verður alltaf að vera í fyrsta sæti. Hann kemur til dyranna eins og hann er klæddur og maður verður að fylgja hans hugmyndum hvort sem maður er sammála þeim eða ekki. Hann er stór persónuleiki og ég held að það sé nákvæmlega það sem Manchester United þarfnast á þessum tímapunkti. Allir verða að róa í sömu átt og ef einhver rær á móti þá má viðkomandi bara fara einhvert annað.

„Mauricio er mjög gáfaður, hann kann að tala við fjölmiðla og veit alltaf hvað hann á að segja. Hann reynir að skapa andrúmsloft þar sem þetta 'erum við gegn heiminum' og ein af hans helstu skilaboðum er að það skiptir engu máli hvað utanaðkomandi raddir segja, það sem gerist á æfingasvæðinu og í leikjum er það sem skiptir máli."


Pochettino hefur einnig stýrt Espanyol, Southampton, PSG og Chelsea á sínum þjálfaraferli og starfar í dag sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna. Hann stýrði liðinu til sex marka sigurs gegn Haítí um helgina og verður síðasti leikurinn undir hans stjórn á miðvikudaginn, aftur gegn Haítí þar sem liðin eigast við í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar.

„Hann veit allt sem er að gerast hjá liðinu, hann fylgist náið með öllum leikmönnum og þarf að hafa stjórn á öllu. Hann leggur mikið upp úr því að leikmenn séu í besta mögulega forminu og geta menn búist við mjög mikið af hlaupaæfingum í Manchester. Hann krefst þess að menn séu í formi og geti hlaupið."

Þessi breyting gæti komið sér einstaklega vel fyrir Rauðu djöflana sem eru með hörmulegar hlaupatölur á upphafi tímabils og eru meðal fimm verstu liða ensku úrvalsdeildarinnar á því sviði.

„Hann er mjög kröfuharður á undirbúningstímabilum. Hann vill spila sóknarþenkjandi bolta með háa varnarlínu og mikið af sprettum. Maður verður að hlaupa til þess að geta spilað fyrir hann, hann tekur hlaupaæfingar á annað stig. Hann krefst að menn leggi sig 100% fram á hverri einustu æfingu.

„Þetta er stór breyting fyrir leikmenn Man Utd og ég býst við að þeir verði fljótir að sjá úrslitin skána eftir nokkrar æfingar með Mauricio."
Leikmenn Man Utd geta búist við erfiðum hlaupaæfingum
Canon

Mynd: EPA

Leikmenn Man Utd geta búist við erfiðum hlaupaæfingum
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.