Fotbolti.net
16.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kiddi Jak sinnir eftirliti í Þjóðadeildinni

Kiddi Jak sinnir eftirliti í Þjóðadeildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Jakobsson mun sinna dómaraeftirliti í Þjóðadeildinni annað kvöld, þegar Bosnía Hersegóvína tekur á móti Rúmeníu í Sarajevo.
Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu?
TENGT EFNI

Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu?

Kristinn er einn af árangursríkustu dómurum Íslandssögunnar og var meðal annars fjórði dómari á EM 2008, auk þess að vera fyrsti íslenski dómarinn til að vera með flautuna í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Bosnía siglir lygnan sjó í öðru sæti síns riðils í B-deild Þjóðadeildarinnar, á meðan Rúmenar þurfa sigur til að eiga möguleika á að forðast fall niður í C-deild.

Kiddi Jak er 57 ára gamall og lagði dómaraflautuna á hilluna fyrir 12 árum síðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.