Fotbolti.net
16.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

EM U21 í dag - Úrslitaleikur í Grikklandi

EM U21 í dag - Úrslitaleikur í Grikklandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er gríðarlega mikilvægur leikur á dagskrá hjá U21 landsliði karla í dag þegar lærlingar Lúðvíks Gunnarssonar heimsækja Grikkland.

Samkvæmt skoðanakönnun á forsíðu Fótbolta.net spá 78% því að Ísland sigri í Grikklandi og komist áfram.
Lúlli: Fáum að sjá öðruvísi grískt lið
TENGT EFNI

Lúlli: Fáum að sjá öðruvísi grískt lið

Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
Liðin mætast í úrslitaleik um sæti á EM næsta sumar eftir að hafa gert 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á Pepsi vellinum í Laugardal, sem fór fram við erfiðar veðuraðstæður.

Ísland var sterkara liðið á heimavelli og klúðraði vítaspyrnu áður en Hilmir Rafn Mikaelsson náði forystunni á 88. mínútu, en Grikkirnir gerðu dramatískt jöfnunarmark skömmu síðar.

Grikkland spilar við Ísland í eina leik dagsins, en hinir þrír umspilsleikirnir fara fram á morgun.

Ef staðan er jöfn eftir venjulegan leiktíma verður gripið til framlengingar og svo fylgir vítakeppni ef hvorugu liði tekst að bera sigur úr býtum eftir 120 mínútur.

Leikurinn hefst klukkan 17:00 að íslenskum tíma og verður hann í beinni útsendingu á SÝN og í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

U21 landslið karla - Umspil EM
17:00 Grikkland-Ísland (Stadio Apostolos Nikolaidis)
EM U21 í dag - Úrslitaleikur í Grikklandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landslið karla - U21 - Undankeppni EM

#LiðLmunStig
1Frakkland10+2526
2Ísland10+1118
3Sviss10+117
4Færeyjar10-912
5Lúxemborg10-910
6Eistland10-192
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.