16.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vann 20,5 milljónir í getraunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Glúrinn tippari gerði sér lítið fyrir og vann 20,5 milljónir króna á enska getraunaseðlinum síðasta laugardag þegar hann reyndist eini Íslendingurinn með 13 rétta.
Tipparinn keypti miðann á sölustað í Reykjavík þar sem hann þrítryggði fimm leiki og tvítryggði þrjá.
Síðasti leikurinn á seðlinum var viðureign Nottingham Forest gegn Manchester City og var tipparinn sniðugur að tvítryggja þann leik.
Man City tapaði leiknum óvænt en tipparinn hafði valið heimasigur og útisigur sem mögulegar útkomur leiksins. Jafntefli hefði komið sér illa fyrir tipparann.