Aron Sig: Mjög ljúft að sjá hann inni
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

„Tilfinningin er mjög góð. Ég er hrikalega stoltur af því að spila fyrir A-landsliðið. Ég naut þess mikið að spila og það var mjög gaman,\" sagði Aron í viðtali við Ómar Smárason hjá KSÍ eftir 3-2 tap Íslands gegn Bandaríkjunum í vináttuleik í gærkvöldi.
Aron sýndi góða frammistöðu í sínum fyrsta landsleik en hann skoraði laglegt mark í síðari hálfleiknum.

„Það var klafs á miðjunni og við fengum aukaspyrnu. Eiður gaf á mig, ég fékk að dribbla inn i teig, ég köttaði til hægri og skaut í fjærhornið. Það var mjög ljúft að sjá hann inni,\" sagði Aron.
Aron var á reynslu hjá norska félaginu Tromsö á dögunum en eins og staðan er í dag verður hann áfram hjá Fjölni.
„Ég er bara að fara heim til Íslands að æfa með Fjölni, þangað til að annað kemur í ljós,\" sagði Aron.
Hér að ofan má sjá viðtalið frá KSÍ í heild sinni.