Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 01. febrúar 2020 19:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Markalaust í frumraun Bruno Fernandes
Dalot fékk mjög gott færi undir lok leiksins.
Dalot fékk mjög gott færi undir lok leiksins.
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes þreytti frumraun sína.
Bruno Fernandes þreytti frumraun sína.
Mynd: Getty Images
Manchester Utd 0 - 0 Wolves

Bruno Fernandes lék sinn fyrsta leik fyrir Manchester United gerði markalaust jafntefli við Wolves á Old Trafford.

Fernandes kom beint inn í byrjunarlið United eftir að hafa verið keyptur frá Sporting Lissabon á fimmtudaginn.

Þessi leikur fer ekki í sögubækurnar fyrir skemmtanagildi. Það var eins og hvorugt liðið væri tilbúið að taka áhættu til að vinna leikinn. Bæði lið áttu sína kafla, en það var ekki nóg til að vinna leikinn.

Varamaðurinn Diogo Dalot fékk líklega besta færi leiksins á síðustu mínútu uppbótartímans. Aaron Wan-Bissaka átti þá fyrirgjöf sem Willy Boly, varnarmaður Úlfanna, missti af. Boltinn barst til Dalot, en skalli hans fór rétt fram hjá markinu.

Lokatölur voru 0-0 og bæði lið fá því stig. Man Utd er í sjötta sæti með 35 stig, sex stigum frá Meistaradeildarsæti. Það virðist erfitt fyrir Man Utd að komast eitthvað nær Chelsea, sem er í fjórða sæti, þá Chelsea lendi oft í því að misstíga sig. Úlfarnir eru einnig með 35 stig, en í sjöunda sæti.

Önnur úrslit:
England: Antonio Rudiger bjargaði Chelsea
England: Liverpool óstöðvandi - Sheffield í fimmta sæti
Athugasemdir
banner
banner