Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 01. febrúar 2023 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Caicedo fékk að æfa í dag
Mynd: Getty Images
Moises Caicedo, sem sterklega var orðaður við Arsenal undir lok félagsskiptagluggans, mætti aftur til æfinga hjá Brighton í dag.

Miðjumaðurinn vildi fara frá Brighton, bað um að fá að fara, en félagið neitaði öllum tilboðum í Ekvadorann.

Hann skrópaði á æfingu á laugardag og var ekki í hópnum gegn Liverpool á sunnudag. Honum var svo bannað að mæta á æfingu í gær en mætti aftur í dag.

Arsenal bauð 70 milljónir punda í Caicedo en Brighton vildi ekki selja, stóð fast á sínu. Brighton ætlar sér Evrópusæti á þessu tímabili og er horft á Caicedo sem algjöran lykilmann í því verkefni.

Sjá einnig:
De Zerbi um Caicedo: Við gerum öll mistök í þessu lífi
Athugasemdir
banner
banner