Gluggadagurinn - Skellt í lás klukkan 23 í kvöld

Mynd: Getty Images

Dragusin var keyptur til Tottenham.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þrátt fyrir að fyrsti dagur febrúarmánaðar sé genginn upp þá er félagaskiptaglugginn enn opinn, en það verður ekki mikið lengur. Gluggadagurinn er í dag.
Janúarglugginn hefur verið með rólegasta móti í ensku úrvalsdeildinni, meðal annars þar sem félögin eru hrædd við að brjóta fjárhagsreglur og fá refsingu.

Tottenham fékk Timo Werner aftur til Englands og eyddi 25 milljónum punda í rúmenska varnarmanninn Radu Dragusin. Kalvin Phillips var lánaður frá Manchester City til West Ham í þeirri von að fá meiri spiltíma í aðdraganda EM.
Annars hefur verið lítið af stórum fréttum í glugganum, mun það breytast í dag? Það er síðasta tækifæri fyrir félögin að fá inn menn fyrir lokakafla tímabilsins. Verða einhver kaup í örvæntingu?
Glugganum verður lokað á Englandi klukkan 23:00 í kvöld. Í Þýskalandi er auðvitað unnið á skrifstofutíma og lokað klukkan 17. Á Ítalíu lokar 19, í Frakklandi 22 og á Spáni 23.
Smelltu hér til að sjá allar STAÐFEST fréttir á einum stað
Fótbolti.net verður á vaktinni alveg þar til glugganum verður skellt í lás. Þegar líða fer á daginn þá ræsum við beina textalýsingu þar sem fylgst verður grannt með hverju skrefi.