Rúnar Alex á leið til FCK

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Samkvæmt heimildum Bold.dk er Rúnar Alex Rúnarsson að ganga í raðir FC Kaupmannahafnar frá Arsenal og á þar að veita Kamil Grabara samkeppni út tímabilið. Grabara fer til Wolfsburg eftir tímabilið.
Theo Sander, varamarkvörður FCK, glímir við meiðsli og þriðji markvörðurinn er einungis átján ára.
Rúnar Alex var á láni hjá Cardiff en var kallaður til baka til Arsenal þegar Ethan Horvath var fenginn til velska félagsins.

Rúnar Alex á hálft ár eftir af samningi sínum við Arsenal og er ekki víst hvort um félagaskipti eða lánssamning er að ræða.
Hjá FCK verður Rúnar Alex liðsfélagi Orra Steins Óskarssonar. Næsti keppnisleikur FCK er gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir tvær vikur.
Rúnar Alex kannast vel við sig í Danmörku því hann var á mála hjá Nordsjælland á árunum 2014-2018.
Rúnar Alex er 28 ára og hefur verið á mála hjá Arsenal síðan 2020. Hann á að baki 27 A-landsleiki.