Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. mars 2020 12:10
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno Fernandes leikmaður mánaðarins hjá Man Utd
Mynd: Manchester United
Portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes hefur farið vel af stað með Manchester United og var valinn besti leikmaður félagsins í febrúar.

Fernandes, 25 ára, var keyptur til Man Utd í janúar fyrir 55 milljónir evra. Kaupverðið getur þó hækkað upp í 80 milljónir með árangurstengdum greiðslum. Þá fær Sporting 10% af hagnaðinum næst þegar Fernandes verður seldur.

Frá komu sinni til Man Utd er Fernandes búinn að spila þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni og tvo í Evrópudeildinni. Í þessum fimm leikjum er hann búinn að skora tvö mörk og leggja tvisvar sinnum upp.

Fernandes verður væntanlega í byrjunarliði Man Utd sem heimsækir Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner