Fotbolti.net
01.03.20 - 22:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ronaldo sneri aftur á Santiago Bernabeu

Ronaldo sneri aftur á Santiago Bernabeu
Canon

Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo sneri aftur á Santiago Bernabeu í kvöld og fylgdist þar með fyrrum félögum sínum í Real Madrid <a href="https://fotbolti.net/news/01-03-2020/spann-real-madrid-vann-el-clasico" target="_blank">vinna Barcelona í El Clasico</a>.
Ronaldo er goðsögn hjá Real Madrid eftir að hafa leikið með félaginu frá 2009 til 2018. Hann vann spænsku úrvalsdeildina tvisvar, spænska bikarinn tvisvar og Meistaradeildina fjórum sinnum með stórveldinu frá Madríd.

Núna er hann á mála hjá Juventus. Hann átti að vera að spila gegn Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld, en þeim leik var frestað út af kórónuveirunni.

Kórónaveiran hefur haft mikil áhrif á ítalskan fótbolta. Sex leikir áttu að fara fram í kvöld, en fjórum þeirra var frestað. Ítalía er það land í Evrópu sem hefur komið verst út úr kórónaveirunni.

Ronaldo skellti sér því til Madrídar í kvöld eins og sjá má að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.