Fotbolti.net
01.03.20 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Troy Deeney: Valdi lakari miðvörðinn

Troy Deeney: Valdi lakari miðvörðinn
Canon

Mynd: Getty Images

Troy Deeney skoraði eitt og komst nokkrum sinnum nálægt því að bæta við í 3-0 sigri Watford gegn Liverpool í enska boltanum í gær.
Ismaila Sarr gerði hin tvö mörkin og var valinn maður leiksins af Sky Sports, með 9 í einkunn.

Versti maður vallarins var Dejan Lovren, sem fékk aðeins 4 í einkunn í liði gestanna. Deeney viðurkenndi í viðtali eftir leikinn að hann hafi lagt upp með að keyra á Lovren frekar en Virgil van Dijk.

„Van Dijk er mikill meistari. Hann er meðal bestu varnarmanna heims, það er mjög erfitt að hafa betur í einvígi gegn honum," sagði Deeney.

„Hann er stór, sterkur og snöggur. Þess vegna valdi ég frekar að sækja á lakari miðvörðinn, án vanvirðingar í garð Lovren.

„Ég vissi að hann vildi berjast við mig líkamlega og það hentaði mér vel. Þetta var mjög erfiður leikur fyrir hann, hann var of upptekinn að atast í mér til að fylgjast með boltanum þegar við skoruðum."


Watford komst úr fallsæti með sigrinum. Liverpool trónir áfram á toppi úrvalsdeildarinnar, með 22 stiga forystu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.