Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 01. apríl 2021 13:20
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Curtis Jones og Rhian Brewster brjáluðust
Mynd: Getty Images
Enska U21 landsliðið er úr leik á EM þrátt fyrir sigur í úrslitaleik gegn Króatíu í lokaumferðinni.

England þurfti tveggja marka sigur gegn Króatíu til að ná öðru sæti riðilsins og komast í útsláttarkeppnina. Englendingar voru tveimur mörkum yfir þar til Króatar minnkuðu muninn í uppbótartíma og tryggðu sér þannig annað sætið á markatölu.

Curtis Jones, leikmaður Liverpool, og Rhian Brewster, leikmaður Sheffield United, voru allt annað en sáttir í kjölfarið og urðu reiðir við fagnaðarlæti Króata.

Hér fyrir neðan má sjá myndband frá því þegar Jones og Brewster virðast ætla að hjóla í allt landslið Króatíu.


Athugasemdir
banner
banner
banner