Fotbolti.net
01.04.22 - 22:58
Hafliði Breiðfjörð

Jasmín: Stjarnan er stór klúbbur og á að hafa stór markmið

Auglýsing
Jasmín í leiknum í kvöld.

Jasmín í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<p><i>„Mér fannst við heilt yfir nokkuð góðar og á köflum betri ef eitthvað er," </i>sagði Jasmín Erla Ingadóttir leikmaður Stjörnunnar eftir 1 - 2 tap liðsins gegn Breiðabliki í úrslitaleik Lengjubikarsins í kvöld.</p>

„Við vorum óheppnar því við fengum alveg færi til að setja á þær en það fór ekki inn," hélt Jamsín áfram en hvað vantaði uppá?

„Kannski bara reynsluna. Við erum bara að stíga okkar fyrstu skref síðan ég kom í Stjörnuna í að vera í svona stórum leikjum. Ég held að þetta eigi eftir að hjálpa okkur í að setja pressu á Val og Breiðablik sem eru yfirleitt að berjast um titilinn."

Stjarnan vann 3 - 0 sigur á Íslandsmeisturum Vals í undanúrslitum keppninnar, það var nokkuð góð yfirlýsing?

„Já, við erum komnar með nokkuð gott lið og höfum fulla trú á að geta unnið hvaða lið sem er. Við förum inn í alla leiki til að vinna þá, sama hvaða leikur það er," sagði hún en er þá markmiðið þeirra að verða Íslandsmeistarar í sumar?

„Við erum ekki búnar að setjast niður og setja okkur markmið en ég er með skýr markmið fyrir sjálfa mig og vona að stelpurnar fylgi því, að við viljum alltaf stefna á toppinn."

„Við erum með góða fótboltamenn og erum að slípa liðið saman. Það eru stelpur hérna búnar að spila nokkur tímabil saman og svo eru aðrar eins og Anna María sem er að koma til baka og nær vonandi öðru tímabili í röð heil. Það er stert fyrir okkur. Stjarnan er stór klúbbur og á að hafa stór markmið."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.