Vestri 1 - 1 Ægir
1-0 Gustav Kjeldsen ('60 )
1-1 Torfi Már Markússon ('90 )
1-0 Gustav Kjeldsen ('60 )
1-1 Torfi Már Markússon ('90 )
Vestri og Ægir mættust í Balou á Spáni í æfingaleik í gær en honum lauk með 1-1 jafntefli.
Ægismenn voru sterkari aðilinn fyrsta klukkutímann en leikmenn Vestra unnu sig inn í leikinn og náðu forystunni er Gustav Kjeldsen stangaði boltann í netið eftir hornspyrnu Benedikts Warén.
Torfi Már Markússon jafnaði metin undir lok leiksins með skalla í samskeytin eftir aukaspyrnu Marko Panic.
Bæði lið munu spila í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir