Fotbolti.net
01.05.18 - 17:03
Ívan Guðjón Baldursson

Kristján Guðmunds: Gaman að mæta liðum utan af landi

Auglýsing
Kristján Guðmunds: Gaman að mæta liðum utan af landi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mjólkurbikarinn
Kristján Guðmundsson þjálfari ÍBV er ánægður með að vera kominn í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir skemmtilega rimmu við Einherja á Hásteinsvelli.

Eyjamenn komust í þriggja marka forystu en gestirnir frá Vopnafirði náðu að minnka muninn niður í 3-2 með tveimur mörkum á lokakaflanum. Heimamenn kláruðu leikinn þó skömmu síðar og unnu 4-2. Fín byrjun á titilvörninni.
„Þetta var bara gaman. Við erum komnir í 16-liða úrslit í bikar eftir að hafa spilað ævintýralega skemmtilegan leik á móti Einherja,\" sagði Kristján að leikslokum.

„Þetta er það sem gerist í þessum leikjum. Það er hrikalega gaman að mæta liðunum utan af landi sem leggja líf og sál í leikinn. Þeir uppskáru tvö mörk og tvö stangarskot og virkilega gáfu okkur leik.\"

Kristján er ánægður með baráttuandann sem Einherjar sýndu og býst við að þeir verði öflugir í þriðju deildinni í sumar.

Þá staðfesti hann endurkomu David Atkinson til ÍBV. Enski varnarmaðurinn kemur á morgun verður í Eyjum út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.