Fotbolti.net
17.07.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Slóveni dæmir úrslitaleik HM

Slavko Vincic

Slavko Vincic

Canon

Mynd: EPA

Slóvenski dómarinn Slavko Vincic mun dæma úrslitaleik Argentínu og Spánar á heimsmeistaramótinu á Metlife-leikvanginum í New Jersey á sunnudag.
Vincic býr yfir mikilli reynslu úr toppfótboltanum og hefur dæmt á mörgum af stærstu sviðum íþróttarinnar.

Hann fór á sitt fyrsta stórmót árið 2012 þegar hann var í teymi Damir Skomina á Evrópumótinu.

Síðan þá hefur hann farið víða. Vincic dæmdi í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2021 og í undanúrslitum Evrópudeildarinnar á sama tímabili.

Hann var aðaldómari í úrslitaleik Borussia Dortmund og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu árið 2024. Tveimur árum áður dæmdi hann úrslitaleik Evrópudeildarinnar á milli Eintracht Frankfurt og Rangers.

Á síðasta ári var Vincic fenginn til að dæma stórleik Fenerbahce og Galatasaray í Tyrklandi og var einnig á meðal dómara á HM félagsliða í Bandaríkjunum.

Á mótinu hefur Vincic dæmt þrjá leiki. Hann var fyrst með flautuna í leik Brasilíu og Marokkó í riðlakeppninni og þótti standa sig vel áður en hann dæmdi viðureign Jórdaníu og Alsírs.

Þá dæmdi hann 32-liða úrslitaleik Mexíkó og Ekvador, þar sem hann rak meðal annars Piero Hincapie, leikmann Ekvador, af velli fyrir að hylja munninn þegar hann ræddi við mexíkóskan leikmann.

Þetta var annað rauða spjaldið á mótinu sem gefið var fyrir sambærilegt atvik.

Dæmdi í sögulegu tapi Argentínu

Vincic hefur dæmt nokkra leiki spænska landsliðsins á síðustu árum en aðeins einn leik hjá Argentínu.

Hann dæmdi tvo leiki Spánverja á EM 2024, þar á meðal 2-1 sigurinn gegn Frökkum í undanúrslitum þegar Lamine Yamal skoraði stórbrotið jöfnunarmark.

Eini leikurinn sem hann hefur dæmt hjá Argentínu var óvænt 2-1 tap liðsins gegn Sádi-Arabíu í riðlakeppni HM í Katar fyrir fjórum árum.

Nokkrar umdeildar ákvarðanir féllu Argentínumönnum í vil í þeim leik. Liðið fékk vítaspyrnu eftir myndbandsdómgæslu sem Lionel Messi skoraði úr og Sádi-Arabar fengu sex gul spjöld á meðan Argentínumenn sluppu án spjalds.

Vincic verður með landa sína Tomas Klancnik og Andraz Kovacic sér til aðstoðar. Adham Makhadmeh verður fjórði dómari og Mohammed Alkalaf varadómari.

Úrslitaleikurinn hefst klukkan 19:00 á sunnudag og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Slóveni dæmir úrslitaleik HM
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.