Palli Gísla: Ljóst að við verðum ekki bikarmeistarar þetta árið
Auglýsing

Palli til hægri á myndinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Palli til hægri á myndinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Palli Gísla þjálfari Magna var svekktur eftir 1-10 tap gegn Breiðablik í dag í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
„Eðlilega þung skref hjá mér og mínum mönnum. Við vorum náttúrlega að spila við geggjað lið, þeir eru sennilega með betri leikmenn í öllum stöðum, á bekknum og jafnvel í næsta nágrenni þannig það er enginn feluleikur þar. 10-1 er kannski ekki það sem við reiknuðum með þó við værum að spila við Breiðablik."
Eftir fimm mínútuna leik var staðan orðinn 0-2 fyrir Breiðablik og Sveinn Óli kominn með rautt spjald.
„Við stúttum leiknum á fyrstu mínútunum, fáum á okkur tvö mörk og lendum einum færri. Þetta er erfitt fyrir okkur en við fengum fínt út úr þessu hlaupalega. Við hlupum mikið."
Aðspurður hvernig yrði unnið úr þessu tapi.
„Það verða allavega ekki keyptir leikmenn. Magni kaupir ekki leikmenn. Við spilum á leikmönnum sem eru hérna á Akureyri og Grenivík og verðum að standa og falla með því. Það eina sem við getum gert er að þétta okkar raðir og þroskast fyrr en ella. Það er annað hvort að kasta handklæðinu eða gíra sig upp. Ég held að flestir séu til í að hysja upp um sig í Magna."
Fótboltasumarið framundan og Inkasso hefst á laugardaginn.
„Mér líst bara geggjað á þetta, flottir strákar og góð stemmning. Þetta verður bara hardcore."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.