Leiknismenn úr Breiðholti sóttu stig til Vestmannaeyja í dag í nokkuð jöfnum leik og eru þar með komnir á blað í Bestu deildinni.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 Leiknir R.
„Ánægður með að ná marki, ánægður með að ná stigi á erfiðum útivelli. Við þurftum að grafa svolítið djúpt til að fá eitthvað út úr þessu,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknismanna eftir 1-1 jafntefli í Vestmannaeyjum.
„Við réðum illa við löngu boltana þeirra, það skapaðist hætta út frá þeim. Þeir áttu örugglega fleiri skot á markið en við fengum líka færi, sagði Sigurður þegar hann var spurður út í hvort niðurstaðan hafi verið sanngjörn.
Leiknismenn eru með eitt stig og hafa skorað eitt mark eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Sigurður viðurkennir að byrjunin á tímabilinu sé ákveðin vonbrigði.
„Jú að sjálfsögðu er byrjunin vonbrigði, ég væri til í að vera með 9 stig og 15 mörk skoruð. En eitt stig eitt mark, það er það sem við erum með og við tökum því bara og áfram gakk. Ég var ánægður með fleiri hluti í rauninni í 0-3 tapi í síðasta leik heldur en í 1-1 jafntefli í dag svona er þetta bara, við tökum þetta stig og förum að safna.“
Leiknismenn fá Íslandsmeistara Víkings R. í heimsókn í næsta leik og líst Sigurði vel á verkefnið.
„Mér líst vel á alla leiki í þessari deild, spennandi að fá Íslandsmeistarana í heimsókn"