Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. júlí 2022 21:01
Brynjar Ingi Erluson
Besti leikmaður Nottingham Forest framlengir (Staðfest)
Brennan Johnson verður áfram hjá Nottingham
Brennan Johnson verður áfram hjá Nottingham
Mynd: EPA
Það eru gleðitíðindi fyrir nýliða Nottingham Forest í dag en Brennan Johnson hefur framlengt samning sinn til 2026.

Johnson átti stórkostlegt tímabil með Forest á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 19 mörk í B-deildinni og hjálpaði liðinu að komast aftur upp í deild þeirra bestu en 23 eru frá því liðið spilaði síðast í úrvalsdeildinni.

Hann var þeirra allra besti leikmaður á tímabilinu og lagði meðal annars upp tíu mörk.

Nú hefur hann framlengt samning sinn við félagið til næstu fjögurra ára eða til 2026.

Fagnaðarefni fyrir Forest en fjölmörg félög höfðu áhuga á að fá hann í sumarglugganum.

Johnson, sem er 21 árs gamall, er fæddur og uppalinn í Nottingham og var það því lykilatriði fyrir félagið að framlengja samning hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner