Taylor Harwood-Bellis, varnarmaður Manchester City á Englandi, mun spila með Burnley á lánssamningi út næstu leiktíð en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Harwood-Bellis er 20 ára gamall og uppalinn hjá City en hann eyddi seinni hluta síðustu leiktíðar á láni hjá Stoke City.
Hann hefur áður verið á láni hjá Anderlecht og Blackburn Rovers en heldur nú aftur út á lán.
Vincent Kompany er nýr stjóri Burnley og er hann heldur betur að nýta samböndin hjá sínu gamla félagi en hann er búinn að klófesta Harwood-Bellis og gætu fleiri leikmenn verið á leið frá Englandsmeisturunum.
Harwood-Bellis á átta leiki að baki fyrir aðallið City og hefur hann þá gert eitt mark.
Hann á á fimmta tug landsleikja fyrir yngri landslið Englands en varnarmaðurinn sterki er fastamaður í U21 árs landsiliðinu sem stendur.
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) July 1, 2022
Athugasemdir