Fotbolti.net
01.08.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Haraldur Árni og Júlíus Orri í ÍR (Staðfest)

Júlíus Orri í leik með Fjölni

Júlíus Orri í leik með Fjölni

Canon

Mynd: Björn Ingvarsson

ÍR tókst að landa tveimur leikmönnum fyrir lok félagaskiptigluggans í gær, en Haraldur Árni Hróðmarsson kom þá frá BÍ/Bolungarvík og Júlíus Orri Óskarsson kom á láni frá Fjölni í fyrstu deildinni.
ÍR gekk ágætlega á markaðnum í gær, en Styrmir Erlendsson, Davíð Már Stefánsson og Daníel Sæberg Hrólfsson komu þá allir. Styrmir kom frá Fylki á láni, en Davíð og Daníel úr Létti.

Haraldur Árni og Júlíus komu þá seint til félagsins í gær, en Haraldur er fæddur árið 1987 og hefur verið á mála hjá BÍ/Bolungarvík. Hann hefur ekkert spilað með liðinu í sumar, en hann á tvo leiki að baki með liðinu frá því í fyrra.

Júlíus Orri er fæddur árið 1993 og kemur á láni frá Fjölni. Hann hefur samtals spilað 9 leiki með Fjölni síðustu tvö ár og skorað eitt mark.

Báðir leikmennirnir verða því með leikheimild er ÍR fær Aftureldingu í heimsókn á Hertz-völlinn á fimmtudaginn eftir viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.