Fotbolti.net
01.09.13 - 23:31
Alexander Freyr Tamimi

Marko Arnautovic í Stoke (Staðfest)

Marko Arnautovic.

Marko Arnautovic.

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke City hefur staðfest kaup sín á framherjanum Marko Arnautovic.
Austurríski landsliðsmaðurinn kemur til Stoke frá Werder Bremen í Þýskalandi, en hann er 24 ára gamall.

Arnautovic hefur skorað 14 mörk í 72 deildarleikjum fyrir Werder Bremen, og sjö mörk í 27 leikjum fyrir austurríska landsliðið.

Kaupverðið er um það bil tvær milljónir punda, en samningslengdin kemur ekki fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.