01.09.13 - 23:52
Alexander Freyr Tamimi
West Brom fær bróður leikmanns Newcastle (Staðfest)

Amalfitano í leik gegn Inter.

Mynd: Getty Images

Amalfitano í leik gegn Inter.

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur fengið miðjumanninn Morgan Amalfitano á láni frá Marseille í Frakklandi. Þetta staðfesti síðarnefnda félagið.
Amalfitano er lánaður til West Brom út þetta tímabil og getur enska félagið keypt leikmanninn ef því þóknast.
Amalfitano er 28 ára gamall og hefur verið leikmaður Marseille frá árinu 2011. Hann á einn landsleik að baki fyrir Frakkland.
Bróðir hans, Romain Amalfitano, spilar með Newcastle en hefur að vísu ekki komið við sögu í ensku úrvalsdeildinni.