Gylfi Sig: Öðruvísi að Lars sé ekki hérna
Auglýsing

Gylfi telur að jafntefli yrðu fín úrslit í Kænugarði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það hefði verið skemmtilegra að hafa fullan völl í Kænugarði á mánudaginn.

„Það er búið að vera mikið um það að stuðningsmenn Swansea vilja að taka þetta en ég leyfi íslensku stuðningsmönnunum að eiga þetta,\" segir Gylfi Þór Sigurðsson, skærasta stjarna íslenska landsliðsins, um Víkingaklappið fræga.
Íslensku landsliðsmennirnir eru orðnir feykilega vinsælir eftir frægðarförina á EM í Frakklandi og vill fólk um allan heim taka Víkingaklappið með þeim.

Viljum upplifa þetta aftur í Rússlandi
Eftir þetta mesta ævintýri íslenskrar fótboltasögu er nú komið að því að endurræsa sig og hefja leik í undankeppni HM. Íslensku strákarnir stefna á að komast í lokakeppnina í Rússlandi 2018 og leiðin þangað hefst í Kænugarði á mánudaginn.
„Nú er að byrja ný keppni og ég held að allir strákarnir hafi skilið Frakkland eftir. Auðvitað var það frábær tími og þvílík upplifun. Nú er bara að reyna að upplifa svona stemningu aftur í Rússlandi. Við sem leikmenn viljum það og starfsliðið einnig. Þetta var það skemmtilegur tími.\"
Mun bara heyrast í leikmönnum
Leikurinn gegn Úkraínu verður leikinn fyrir luktum dyrum. Aðeins fjölmiðlamönnum og fólki úr knattspyrnusamböndunum verður hleypt inn á 70 þúsund manna leikvanginn í Kænugarði.
„Auðvitað hefði verið langbest að hafa fullan völl og stemningu. Það verður öðruvísi að hafa tóman völl og það heyrist ekkert nema í leikmönnunum á vellinum. Það er ekki það sem er vanur. Það skiptir mestu máli að við fáum eitthvað út úr þessum leik,\" segir Gylfi.
Er jafntefli í leiknum á mánudag fín úrslit að mati Gylfa?
„Já ég held það. Úkraína er með sterkan hóp þrátt fyrir að hafa tapað öllum leikjunum á EM þá unnu þeir fimm leiki í röð fyrir mótið. Þeir hafa mjög sterkar leikmenn og eru sérstaklega sterkir á heimavelli.\"
Heimir er meira en tilbúinn
Heimir Hallgrímsson er nú einn aðalþjálfari eftir að Svíinn Lars Lagerback lét af störfum eftir ansi farsælt starf. Gylfi viðurkennir að það sé öðruvísi að hafa Lagerback ekki í kringum sig.
„Auðvitað er það svolítið öðruvísi. Hann er búinn að vera með okkur í fjögur til fimm ár kallinn og það var gott að hafa hann. Það var gott að hafa þessa reynslu sem hann býr yfir og hefur miðlað til Heimis. Ég held að Heimir sé meira en tilbúinn að stýra þessu einn,\" segir Gylfi en viðtalið sem tekið var í Frankfurt, þar sem íslenska landsliðið býr sig undir leikinn, má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.