Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 01. september 2022 10:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gueye gefur í skyn að hann sé að snúa aftur á Goodison
Mynd: Getty Images
Flest bendir til þess að Idrissa Gana Gueye verði tilkynntur sem nýr leikmaður Everton seinna í dag. Gueye er miðjumaður PSG en hann kom til félagsins frá einmitt Everton árið 2019.

Gueye átti fín þrjú tímabil með Everton á árunum 2016-2019. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í 33 leikjum með PSG en hefur ekkert leikið í upphafi nýs tímabils.

Hann hefur mikið verið orðaður við endurkomu til Everton í sumar og í gær sagði fréttamaðurinn Fabrizio Romano frá því að Gueye væri í læknisskoðun.

Gueye, sem er 32 ára landsliðsmaður Senegal, gefur í skyn að eitthvað sé að gerast í sínum málum með færslu sinni á Twitter.


Athugasemdir
banner
banner
banner