Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 01. október 2021 13:27
Brynjar Ingi Erluson
Kári Árna um Kyle: Vonandi kemst hann út í atvinnumennsku
Kári Árnason
Kári Árnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason, verðandi yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi R., segist meira en viljugur til þess að hjálpa Kyle McLagan að bæta sig en bandaríski varnarmaðurinn skrifaði undir tveggja ára samning hjá félaginu í dag.

McLagan kemur til Víkings á frjálsri sölu frá Fram eftir að hafa hjálpað þeim bláklæddu að komast upp í deild þeirra bestu.

Framarar unnu Lengjudeildina sannfærandi og var Kyle lykillinn í varnarleik liðsins. Kári hringdi í Kyle og tókst að sannfæra hann um að semja við Víking.

Kyle kemur til með að leysa Kára af hólmi sem hættir eftir tímabilið.

„Mjög góð. Þetta er mjög 'professional' strákur, kröftugur og rosalegt 'potential' í honum. Hann er fljótur, sterkur og virðist vera góður á boltann, þannig þetta er mjög góður 'canvas' að vinna með og vonandi get ég hjálpað honum á sinni leið," sagði Kári við Fótbolta.net.

„Vonandi kemst hann út í atvinnumennsku og takmarkið er að reyna að selja hann í framhaldinu af því."

„Ef hann er tilbúinn að hlusta á það sem ég hef að segja þá er ég meira en viljugur til að hjálpa honum eins mikið og hann vill,"
sagði hann um Kyle.

Sjá einnig:
Kyle McLagan: Símtalið frá Kára spilaði stóra rullu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner